Fáðu greitt fyrir sköpunargáfurnar

Ertu skapandi, hefur auga fyrir góðu myndefni og kanntu að setja saman grípandi stuttmyndbönd fyrir samfélagsmiðla?

Hjá Fomo tengjum við þig sem UGC (User Generated Content) efnisskapara við fjölbreytt vörumerki sem sækjast eftir notendasköpuðu og frambærilegu efni fyrir samfélagsmiðlana sína.

Af hverju að vera Fomo efnisskapari?

Fáðu greitt fyrir sköpunargáfurnar

Taktu myndir, búðu til stuttmyndbönd eða annað efni fyrir samfélagsmiðla hjá öðrum og fáðu umbun fyrir vinnuna þína.

Vertu hluti af öflugu tengslaneti

Við vinnum með fjölmörgum vörumerkjum sem eru spennt að byggja upp samfélagsmiðlana sína með efni frá hæfileikaríkum efnissköpurum.

Byggðu upp feril og sýnileika

Þú getur stækkað tengslanetið þitt, bætt í ferilskrána og safnað reynslu úr ýmsum áttum.

Skapaðu efni á þínum forsendum

Þú ræður hvenær, hvar og hvernig þú skapar efnið. Allt eftir þínu eigin höfði.

Hvernig virkar þetta?

1

Skráðu þig

Segðu okkur frá þér, sýndu okkur hvað þú hefur fram á að færa og við verðum í bandi.

2

Fáðu verkefni frá vörumerkjum

Fomo finnur vörumerki sem passa við þinn stíl og sendir þér verkefnatilboð.

3

Skapaðu og segðu sögur

Taktu myndir eða myndbönd á þínum eigin forsendum og sendu áfram til samþykkis hjá vörumerkjum.

4

Fáðu greitt

Þegar efnið þitt er tekið í notkun færð þú greitt fyrir vinnuna þína.

Ekki missa af tækifærunum!

Saman hjálpum við vörumerkjum að segja sögurnar sínar, koma vörunum sínum á framfæri og mynda sterkari tengsl við áhorfendur á þeirra samfélagsmiðlum.

Heyrðu í okkur